Foreldrahús

Foreldrahús eru samtök sem miða að því að aðstoða fjölskyldur sem eiga börn og unglinga í einhverskonar vanda.  Starfsemi Foreldrahúss skiptist í tvo megin flokka, forvarnir og ráðgjöf.

Í Foreldrahúsi starfa sérhæfðir ráðgjafar og er m.a. boðið upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglinga, viðtöl og stuðningshópa fyrir foreldra, sem og fyrir börnin sjálf.

Einnig er starfræktur ráðgjafasími fyrir foreldra/aðstandendur, sem opinn er allan sólarhringinn: 511-6160 á dagvinnutíma, en 581-1799 eftir lokun skrifstofu.

Barnaverndarnefnd aðstoðar oft með greiðslur fyrir viðtöl og/eða námskeið sem Foreldrahús býður upp á, ef barnið er komið í barnaverndarkerfið.


Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/olnbogabornin.is/htdocs/wp-content/themes/ken/footer.php on line 215