Lifandi Ráðgjöf

Home / Úrræði fyrir fjölskylduna / Lifandi Ráðgjöf

Lifandi ráðgjöf er ráðgjafa, fræðslu- og þekkingarsetur um áfengis- og vímuefnamál. Lifandi Ráðgjöf býður upp á lausnamiðaða þjónustu til einstaklinga og fyrirtækja í formi ráðgjafar, námskeiða, netþjónustu og fyrirlestra. Lausnir eru sérsniðnar að viðskiptavinum og leggur Lifandi ráðgjöf áherslu á að bjóða einstaklingsmiðaða þjónustu. 

Framtíðarsýn Lifandi Ráðgjafar er að fylgjast með rannsóknum og nýjungum á sviði áfengis- og vímuefnamála og stuðla að aukinni fræðslu og forvarnarstarfi.  Öll hugmyndafræði Lifandi Ráðgjafar byggir á víðtækri þekkingu og reynslu fagfólks og sérfræðinga varðandi áfengis- og vímuefnamál sem og í kennslufræðum. Framtíðarsýn Lifandi Ráðgjafar er að vera leiðandi í áfengis- og vímuefnamálum og öflugt kennslu og ráðgjafa fyrirtæki fyrir almenning, fagstéttir og stjórnvöld.