PTMO – Foreldrafærni

Home / Úrræði fyrir fjölskylduna / PTMO – Foreldrafærni

PMTO stendur fyrir Parent Management Training – Oregon aðferð, og er sannprófað meðferðarprógramm ætlað foreldrum barna með hegðunarerfiðleika. Úrræðið er þróað af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. Úrræðið hentar foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri. Mikilvægt er að vinna með hegðunarvanda á fyrstu stigum þróunar þar sem alvarlegir hegðunarerfiðleikar geta leitt til andfélagslegra hegðunar, sem oft hefur seinna meir í för með sér áfengis- og vímuefnanotkun samhliða afbrotum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að PMTO dregur úr hegðunarerfiðleikum barns á heimili og hefur auk þess jákvæð áhrif á samskipti innan fjölskyldu og frammistöðu barns í námi.

PMTO-FORELDRAFÆRNI er miðstöð meðferðarúrræðisins á Íslandi. Hlutverk miðstöðvarinnar er að innleiða PMTO á Íslandi með hárri fylgni við aðferðina og hafa yfirumsjón með öllum verkþáttum sem unnir eru undir merkjum PMTO-FORELDRAFÆRNI. Miðstöðin hóf starfsemi sína í Hafnarfirði árið 2000 en haustið 2013 varð hún hluti af úrræðum Barnaverndarstofu. Nánar má lesa um aðferðina á heimasíðu PTMO-FORELDRAFÆRNI.


Warning: count(): Parameter must be an array or an object that implements Countable in /var/www/virtual/olnbogabornin.is/htdocs/wp-content/themes/ken/footer.php on line 215